Retour aux promos
Veðrið

Meteo

Gratuit

Veðrið

par Olafur Helgi Haraldsson

v4.0.6 51 Mo Universel 4+

Description

Veðrið sýnir veðurupplýsingar frá íslenskum veðurstöðvum í einföldu og læsilegu viðmóti, byggðu á kunnuglegum veðurskiltum Vegagerðarinnar.

Appið sýnir raunmælingar fyrir vind, vindhviður, hita og viðvaranir frá veðurstöðvum um allt land. Gögnin koma meðal annars frá Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands og Ambientweather-stöðvum einstaklinga á Íslandi.

Veðrið er hugsað fyrir fólk á ferð um Ísland sem vill sjá skýrar upplýsingar fljótt um færð og veður.

Hægt er að nota appið án auglýsinga með áskrift. Áskrifendur sjá engar auglýsingar í appinu.

Athugið að Veðrið er ekki opinber neyðar- eða ferðaupplýsingaþjónusta. Staðfestið alltaf mikilvægar ferðaupplýsingar hjá opinberum aðilum, til dæmis í síma 1777.

Nouveautés (v4.0.6)

Það er komið sumar og Veðrið hefur verið uppfært!

Í þessari útgáfu:
- Veðurstöðvum hefur verið fjölgað í um 500 með stuðningi við Ambient Weather-stöðvar einstaklinga á Íslandi.
- Nýrri og skýrari stöðvalisti hjálpar þér að finna veðurstöðvar nærri þér þegar þú ert á ferðalagi.
- Þú getur raðað veðurstöðvunum þínum eins og þú vilt.
- Viðvaranir og upplýsingar um færð á nærliggjandi vegum birtast við veðurstöðvar þegar gögn eru til staðar.
- Kortið sýnir vind og hita í rauntíma. Engin spá, bara alvöru mælingar.
- Áskrift fjarlægir auglýsingar úr appinu.

Þetta er fyrsta útgáfan af nokkrum sem eru skipulagðar næstu mánuði. Við höldum áfram að bæta upplifunina, gögnin og ferðatengd verkfæri í næstu útgáfum.