Velkomin á Slapp, nýjan íslenskan samfélagsmiðil sem fer aftur til upprunans. Við höfum skapað öruggan vettvang þar sem fólk getur átt í samskiptum, deilt efni og verið hluti af samfélagi án truflana.
Hvað gerir Slapp sérstakt?
Rafræn skilríki: Aðgangur er eingöngu veittur með innskráningu í gegnum rafræn skilríki. Þetta tryggir að hver einasti notandi er raunverulegur einstaklingur. Engir falskir aðgangar, engin tröll og engir bottar.
Engar auglýsingar: Við trúum á hreina upplifun. Það eru engar auglýsingar á Slapp.
Raunveruleg samskipti: Markmið okkar er að endurvekja þá tilfinningu sem samfélagsmiðlar gáfu í "gamla daga" – þar sem vinir og fjölskylda eru í forgrunni.
Helstu eiginleikar:
Fréttaveita (News Feed): Fylgstu með því sem vinir þínir og fjölskylda eru að bralla. Deildu myndum, texta og upplifunum.
Hópar: Búðu til eða vertu með í hópum um áhugamál, hverfishópa eða fjölskylduhópa.
Spjall: Sendu skilaboð beint á aðra notendur í öruggu umhverfi.
Íslenskt hugvit: Hannað og þróað á Íslandi, fyrir Ísland.
Sæktu Slapp í dag og vertu hluti af öruggara og skemmtilegra net-samfélagi.